Ykkar salur. Ykkar app.
Í ykkar litum.

Eigið app tónleikahússins í App Store og Google Play. Stubbur smíðar það og rekur fyrir fast mánaðargjald.

Sækja um appFyrir tónleikahús og sali
Appið, Heim
BæjarbíóMiðasala hafin á Pink Floyd – 60 ára
núna

Fleiri gestir.
Nýjar tekjur.

1

Gestirnir eru í símanum.

Þeir leita að dagskránni, miðunum og hvenær húsið opnar. Með eigin appi er salurinn í vasanum þeirra, í ykkar litum.

2

Þið eigið sambandið.

Allir sem ýta á „Fylgja“ verða ykkar listi og þið náið til þeirra með einni tilkynningu: ný sýning, miðasala, aukasýning.

3

Nýjar auglýsingatekjur.

Appið er auglýsingapláss sem þið seljið ykkar samstarfsaðilum, með tölum um birtingar og smelli. Tekjurnar eru ykkar.

Af hverju Stubbur: við sjáum nú þegar um miðasöluna ykkar, svo appið er tengt frá fyrsta degi. Ekkert nýtt kerfi, engin forritun.

Miðar og gjafakort.

Gestir kaupa miða, gjafakort og klippikort í appinu ykkar. Greiðslan og miðinn eru á sama stað.

  • Miðar á alla viðburði
  • Gjafakort og klippikort
  • Miðarnir í símanum við dyrnar
Gjafakort í appinu
Salurinn í appinu

Dagskráin.

Næsti viðburður efst, öll dagskráin eftir mánuðum og miðakaup beint af hverjum viðburði.

  • Viðburðir framundan eftir mánuðum
  • Stór forsíðumynd fyrir næsta viðburð
  • Miðakaup beint af viðburðinum
Leikir og úrslit
Leikur með tölfræði

Fylgjendur og push.

Gestir fylgja salnum í appinu. Þið sendið þeim tilkynningu þegar miðasala hefst eða aukasýning bætist við.

  • „Fylgja Bæjarbíói“ í appinu
  • Tilkynning beint í símann
BæjarbíóMiðasala hafin á Pink Floyd – 60 ára
núna
BæjarbíóAukasýning: Jóli Hólm 22. des
2 klst.

Samstarfsaðilar með skýrslum.

Salurinn selur sínum eigin samstarfsaðilum pláss í appinu og fær skýrslu um birtingar og smelli á hverjum stað.

  • Borði á forsíðu
  • Lína á viðburðaspjöldum
  • Samstarfsaðilar á einum vegg
Styrktaraðilar á forsíðu appsins
Borði á forsíðubirtingar og smellir
Lína á viðburðaspjöldumbirtingar og smellir
Samstarfsaðilarbirtingar og smellir

Tveir pakkar.
Engin uppsetning.

Öll verð eru án vsk.

Engin uppsetning
0 kr.
Sparar 590.000 kr. 24 mánaða samningur. Við smíðum appið og gefum það út í App Store og Google Play undir nafni salarins.
Plús
49.990kr/mán
+ vsk
  • Eigið app í litum salarins
  • Dagskrá og næsti viðburður
  • Miðar, gjafakort og klippikort
  • Fylgja og tilkynningar
Vinsælast
Pro
79.990kr/mán
+ vsk
  • Allt í Plús
  • Borgar sig með einum samstarfsaðila
  • Pláss fyrir samstarfsaðila salarins:
  • Borði á forsíðu
  • Línur á viðburðaspjöldum
  • Samstarfsaðilaveggur
  • Skýrslur um birtingar og smelli

Eða 590.000 kr. uppsetning og lægra mánaðargjald: Plús 34.990 kr. og Pro 59.990 kr. á mánuði, + vsk.

Þrjú skref að appinu.

1

Sækið um í mælaborðinu

Umsóknin er send úr mælaborðinu ykkar.

2

Staðfestið liti, merki og samstarfsaðila

Þið farið yfir útlitið og samstarfsaðilana og samþykkið.

3

Við gefum appið út

Stubbur birtir appið í App Store og Google Play undir nafni salarins.

Spurt og svarað.

Hvað þurfið þið að gera?

Sækja um í mælaborðinu og staðfesta liti, merki og samstarfsaðila. Stubbur smíðar appið og gefur það út.

Undir hvaða nafni birtist appið?

Undir nafni salarins, í App Store og Google Play, með ykkar merki og litum.

Hver fær tekjurnar af samstarfsaðilum í appinu?

Þið. Salurinn selur sínum samstarfsaðilum pláss í appinu og fær allar tekjurnar. Stubbur selur engar auglýsingar.

Breytist þóknunin af miðasölu?

Nei. Miðar, gjafakort og klippikort eru seld í gegnum Stubb eins og í dag.

Hvað er innifalið í mánaðargjaldinu?

Rekstur appsins, uppfærslur fyrir nýjar útgáfur af iOS og Android, hýsing og aðstoð.