
Hosted by
Retro Stefson
Retro Stefson þriggja daga afmælisveisla!

Hosted by
Retro Stefson
Retro Stefson þriggja daga afmælisveisla! Austurbæjarbíó: 17. 18. og 19. desember 2026 Miðasala hefst á stubb miðvikudaginn 10. júní Sérstök Aur forsala 8. til 10. júní Retro Stefson er 20 ára í ár. Í tilefni af því heldur hljómsveitin þriggja daga afmælisveislu 17. 18. og 19. desember í Austurbæjarbíó við Snorrabraut. Miðasala hefst í stubb appinu og á stubb.is miðvikudaginn 10. júní kl. 11. Sérstök Aur forsala hefst kl. 12 á mánudaginn 8. júní í gegnum Aurappið. Í þessari þriggja daga afmælisveislu mun Retro Stefson gera ferlinum rækileg skil með þeim hætti sem hljómsveitinni einni er lagið. Gestir troða upp í bland við ýmsar óvæntar uppákomur. Austurbæjarbíó varð fyrir valinu til að mynda þétta og sveitta stemmingu en líka til að sækja í ræturnar. Retro Stefson fæddist jú bara hinum megin við Snorrabrautina í Austurbæjarskóla. Þetta verður þétt, sveitt en umfram allt ógeðslega skemmtilegt! Dönsum saman og fögnum Retro Stefson á þessum tímamótum!