Stubbur
IS
Nemendasýningar Dans Brynju Péturs 21. nóvember

Nemendasýningar Dans Brynju Péturs 21. nóvember

Laugardagur, 21. nóvember · Íþróttahús Seljaskóla, Kleifarseli 28

Engar dagsetningar í boði

Dans Brynju Péturs

Dans Brynju Péturs

Um viðburðinn

Nemendasýningar Dans Brynju Péturs laugardaginn 21. nóvember! Við skiptum 10 hverfunum og bæjarfélögunum okkar í þrennt en framhaldshópar dansa á öllum þremur sýningum. Fyrsta sýning kl. 12:25-13:25 Laugardalur, Garðabær & Kópavogur Önnur sýning kl. 15-16 Breiðholt, Grafarvogur & Vesturbær Þriðja sýning kl. 18:10-19:10 Hafnarfjörður, Árbær & Seltjarnarnes Dansskólinn hefur verið starfræktur síðan 2012 og sett upp sýningar tvisvar á ári í Seljaskóla síðan þá. Jólaskraut í formi ljósa- og hljóðkerfis kemur frá Sonik og öllu er tjaldað til. Allt starfsfólk skólans er að dansa og / eða í umsjón á deginum öllum sem gengur frá kl. 09-19:30. Það er mikil stemmning og ástríða í öllum hópnum og við hlökkum til að búa til skemmtilegasta daginn með ykkur öllum! Ath: Haustönn klárast 4. desember. Vorönn verður í 16 vikur í 17. vikna ramma frá 18. janúar - 15. maí, skráning hefst 24. nóvember. *Möguleiki á örnámskeiði með erlendum gesti fyrir 13 ára + frá 12.-15. janúar. Ath: Miða- og bola sala er nauðsynleg til að keyra þennan risa dag, en bæjarfélögin banna það að sú sala sé sett undir námskeiðs verð - það eru forsendur þess að hægt sé að nýta frístundastyrkina.