12. nóv – 20. nóv · Ölver

Kári Viðars
Fresh Happy Mex er þriðja tónlistaruppistands-sýning Kára Viðarssonar og jafnframt sú lang lang lang lang lang lang metnaðarfyllsta. Hún er í fyrsta lagi með hellings spons og verður auglýst grimmt. Það er annað en fyrirrennarar hennar Frjáls Framlög (Tjarnarbíó 2017) og Félagslegt Sjálfsmorð (Café Rósenberg 2024). Einnig mun Kári spila á fleiri hljóðfæri en áður og allt verður aðeins tæpara og líklegra til að valda usla. Miðar á þessa sýningu verða einnig miklu dýrari en á þær fyrri, enda skuldastaða performerssins mikið mun alvarlegri en áður. Jafnframt er hún mun ódýrari en flestar samkeppnissýningarnar en þó verður boðið uppá frítt nachos og þeir sem koma fyrstir geta fengið fríann bjór. Grínlög, mistök, dæmisögur, kenningar og sitthvað sem kemur á óvart. Ógleymanleg kvöldstund með best geymda leyndarmáli íslenskrar grínsenu. Bannað börnum innan 16.