22. jan kl. 18:30 · Tónabíó - RVK Bruggfélag

Tónabíó
Pabbi, kanntu að flétta? Næst þegar hún sest fyrir framan þig með teygju og bursta segirðu bara já. Hár23 og RVK Bruggfélag bjóða pöbbum að hittast í Tónabíó, læra ný handtök og eiga skemmtilegt kvöld. Helga Guðrún og Tinna, hársnyrtimeistarar og eigendur Hár23 í Kópavogi, leiða þig í gegnum grunnatriðin í hárgreiðslu. Þú lærir að greiða, flétta og gera einfaldar og flottar hárgreiðslur sem nýtast heima. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg. Þú kemur til að læra og prófa þig áfram. Æfingahausar eru á staðnum. Fyrsti bjórinn frá RVK Bruggfélagi er innifalinn, ásamt gjafapoka frá Hár23. Óáfengt í boði fyrir þá sem vilja. Að námskeiði loknu verða tilboð á barnum. Staður: Tónabíó, Skipholti 33, Reykjavík. Dagsetning: Föstudagurinn 27. nóvember 2026. Upphaf: Kl. 18:30. Áætluð lengd: 1,5 til 2 klst. Fjöldi: 24 pláss. 20 ára aldurstakmark. Verð: 10.990 kr. með öllum miðasölugjöldum. Taktu pabbavin með og komið að læra.