18. des – 19. des · Neskirkja

LÓN
Valdimar Guðmundsson syngur hugljúf jólalög í nýjum útsetningum með hljómsveit sinni, LÓN. Sérstakur gestur: RAKEL. --- Hljómsveitin LÓN með söngvarann Valdimar í broddi fylkingar flytur óvæntar útgáfur af þekktum jólaperlum. Sérstakur gestur er söngkonan RAKEL. Jólaplatan „5 mínutur í jól“ kom út árið 2022 og hefur síðan þá fest sig í sessi sem ómissandi hluti af hljóðmynd aðventunnar. Nú gefst fólki tækifæri til að heyra plötuna flutta á svið í notalegu umhverfi víðs vegar um landið. Húsið opnar klukkan 20:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:30