Ykkar app.
Í ykkar litum.

Eigið app félagsins í App Store og Google Play. Miðar, árskort, verslun, fylgjendur og styrktaraðilar á einum stað. Stubbur smíðar appið og gefur það út fyrir fast mánaðargjald.

Sækja um appÞegar í notkun hjá KR
KR appið, Heim
KRMiðasala hafin á KR – Fjölnir
núna

Af hverju app?
Af hverju núna?

1

Stuðningsfólkið er í símanum.

Á leikdegi leitar það að tíma, úrslitum og miðum. Með eigin appi er félagið í vasanum þeirra, í ykkar litum.

2

Þið eigið sambandið.

Allir sem ýta á „Fylgja“ verða ykkar listi og þið náið til þeirra með einni tilkynningu: miðasala, árskort, verslun.

3

Nýjar auglýsingatekjur.

Appið er nýtt auglýsingapláss sem félagið selur sínum styrktaraðilum: borði á forsíðu, línur á leikjaspjöldum, samstarfsaðilaveggur, með tölum um birtingar og smelli. Tekjurnar eru félagsins.

Af hverju Stubbur: við sjáum nú þegar um miðana, árskortin og verslunina ykkar, svo appið er tengt frá fyrsta degi. Ekkert nýtt kerfi, engin forritun.

Miðar, árskort og verslun.

Stuðningsfólk kaupir miða, árskort og vörur í appinu félagsins. Greiðslan og miðinn eru á sama stað.

  • Miðar á leiki og viðburði
  • Árskort með mánaðargreiðslum
  • Búð með vörum félagsins
Árskort í KR appinu
Búðin í KR appinu

Leikir og tölfræði.

Næsti leikur, úrslit og tölfræði úr leikjum liðanna. Hnappur til að kaupa miða á næsta heimaleik er á leikjaskjánum.

  • Leikir framundan og úrslit
  • Stigahæstu leikmenn og liðstölfræði
  • Miðakaup beint af leiknum
Leikir og úrslit
Leikur með tölfræði

Fylgjendur og push.

Stuðningsfólk fylgir félaginu í appinu. Félagið sendir þeim tilkynningu þegar miðasala hefst eða árskortin koma í sölu.

  • „Fylgja KR“ í appinu
  • Tilkynning beint í símann
KRMiðasala hafin á KR – Fjölnir
núna
KRÁrskort 2026–2027 í sölu
2 klst.

Styrktaraðilar með skýrslum.

Félagið selur sína eigin styrktaraðila í appinu og fær skýrslu um birtingar og smelli á hverjum stað.

  • Borði á forsíðu
  • Lína á leikjaspjöldum
  • Samstarfsaðilar á einum vegg
Styrktaraðilar á forsíðu appsins
Borði á forsíðubirtingar og smellir
Lína á leikjaspjöldumbirtingar og smellir
Samstarfsaðilarbirtingar og smellir

Tveir pakkar.
Eitt mánaðargjald.

Öll verð eru án vsk.

Sérsmíðað app: 8–15 m.kr.
Hjá Stubbi: 190.000 kr. og frá 14.990 kr. á mánuði.

Auk 1–2 m.kr. á ári í rekstur á sérsmíðuðu appi. Hjá Stubbi er reksturinn innifalinn.

Uppsetning
190.000 kr.
Við smíðum appið og gefum það út í App Store og Google Play undir nafni félagsins.
Plús
14.990kr/mán
+ vsk
  • Eigið app í litum félagsins
  • Leikir, úrslit og tölfræði
  • Miðar, árskort og verslun
  • Fylgja og tilkynningar
Vinsælast
Pro
29.990kr/mán
+ vsk
  • Allt í Plús
  • Pláss fyrir styrktaraðila félagsins:
  • Borði á forsíðu
  • Línur á leikjaspjöldum
  • Samstarfsaðilaveggur
  • Skýrslur um birtingar og smelli

Þrjú skref að appinu.

1

Sækið um í mælaborðinu

Umsóknin er send úr mælaborði félagsins.

2

Staðfestið liti, merki og styrktaraðila

Þið farið yfir útlitið og styrktaraðilana og samþykkið.

3

Við gefum appið út

Stubbur birtir appið í App Store og Google Play undir nafni félagsins.

Spurt og svarað.

Hvað þarf félagið að gera?

Sækja um í mælaborðinu og staðfesta liti, merki og styrktaraðila. Stubbur smíðar appið og gefur það út.

Undir hvaða nafni birtist appið?

Undir nafni félagsins, í App Store og Google Play, með merki og litum félagsins.

Hver fær tekjurnar af styrktaraðilum í appinu?

Félagið. Félagið selur sínum styrktaraðilum pláss í appinu og fær allar tekjurnar. Stubbur selur engar auglýsingar.

Breytist þóknunin af miðasölu?

Nei. Miðar, árskort og verslun eru seld í gegnum Stubb eins og í dag.

Hvað er innifalið í mánaðargjaldinu?

Rekstur appsins, uppfærslur fyrir nýjar útgáfur af iOS og Android, hýsing og aðstoð.